Mmmmm....
Pabbi var að færa mér Irish - coffee, mmmm... ég mun sem sagt ekki læra meira stærðfræði í kvöld!
Ég hef hins vegar skemmtilegar bernskuminningar tengdar Irish-coffe, eða hræriskaffi eins og ég var vön að kalla það (og geri enn). Einu sinni sem oftar vorum við stödd að sumri til á Vonarlandi í Ísafjarðardjúpi (gamalt býli sem hefur verið gert upp sem sumarhús). Ég var eflaust ekki meira en 6 eða 7 ára. Síðla kvölds ákváðu mamma og pabbi að gera Irish-coffee. Ég og mín tröllatrú á að ég vissi hvernig ætti að gera Irish-coffee fórum inn í eldhús og gerðum eflaust þann svakalegasta ógeðisdrykk sem um getur, allt hins vegar með góðum hug. Mig minnir sterklega að kalt kaffi hafi verið notað, ásamt bönunum, rjóma, súkkulaði, kanil, salti og öðrum tiltækum efnum sem fundust í eldhúsinu. Þessu var síðan öllu blandað saman, hellt í tvö falleg glös, skreytt með rjóma og sérstakar hræriskeiðar settar með. Borið fram í setustofu við mikla lukku foreldra minna. Ég sá þá hins vegar aldrei taka sopa. Ég var send í rúmið og þakkað fyrir þetta æðislega hræriskaffi sem ég hafði verið svo góð að gera fyrir mömmu og pabba.
Það fyndna við þetta allt saman er að ég trúði því staðfastlega í þó nokkuð mörg ár á eftir að ég kynni að gera Irish-coffee.
Ég kann það ekki enn...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home