mánudagur, apríl 25, 2005

Nýja æðið



Það eina sem ég get hugsað um þessa daganna er að læra köfun. Ég fékk svona æði fyrir um 2 árum (grunar að það hafi líka verið í prófunum.... hmmm) og einhvern veginn kom það upp aftur núna. Ég er búin að finna þrjá sem kenna köfun hérna heima, þeir eru eflaust fleiri. Mér lýst best á þennan sem stendur, en svo koma þessir líka sterklega til greina.

Byrjunarnámskeiðið, PADI Open Water Diver, gefur réttindi til köfunar niður á 18 metra. Innifalið er bóklegt námskeið, 5 köfunum í sundlaug og síðast en ekki síst 5 köfunum í sjó. Þetta er alþjóðlegt skírteini svo það væri ekkert mál að skella sér í köfun á Galapagos eyjum eða á kóralrifum hvarvetna í heiminum ;-).

Eftir byrjunarnámskeiðið er svo að sjálfsögðu hægt að halda áfram og næla sér í réttindi til að næturköfunar, sem á víst að vera með því skemmtilegasta sem hægt er að gera, einnig réttinda til að kafa niður í skipsflök og þess háttar. Auk þess hefur Slysavarnarfélagið Landsbjörg verið með námskeið í leitarköfun og björgun sem mér persónulega finnst mjög áhugavert og gæti nýtt mér ef maður heldur áfram starfi með björgunarsveitinni.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þetta áhugamál meira bendi ég á þá köfunarskóla sem ég talaði um hérna fyrir ofan svo og heimasíðu sportkafarfélags Íslands.

Hver veit, kannski maður láti bara drauminn rætast og skelli sér í sumar... :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home