Nú má sumarið koma
Já, stúdentsprófum í MR er nú formlega lokið:) Ég verð nú að segja að þetta er algjör geðveiki. Svona stress fer bara alveg með mig. En nú er þetta búið. Dagurinn í gær var jafnframt lengsti og síðast skóladagur minn í MR. Ég var mætt á Íþöku klukkan korter yfir 7 og tók þá jarðfræðipróf klukkan 9. Hélt svo að ég myndi þreyta hið margfræga munnlega stærðfræðipróf (sem er nú orðið soldið úrelt, haaaa?) klukkan 5. En nei nei nei, eins og með öll munnleg próf þá á maður að gera ráð fyrir rúmum biðtíma. Ég gekk ekki inn í prófstofuna fyrr en klukkan 20:45 og gekk út úr henni klukkan 21:45. Jáhá, tæpir 15 klukkutímar innan veggja Menntaskólans í Reykjavík þennan daginn.
Þegar ég svo loksins stóð fyrir utan skólann eftir prófið og andaði að mér fersku lofti þá fylltist ég tilhlökkunar því ég mundi allt í einu eftir öllu því sem er framundan. Já, ég er barasta (líklegast...) að fara að útskrifast á föstudaginn. Á laugardaginn er jubilanta ball. Á mánudaginn á ég afmæli og á miðvikudaginn fer ég út til Danmerkur.
Annars hefur ákvörðun verið tekin í sambandi við næsta ár. Hún er annsi spennandi skal ég segja ykkur:) Ekki að ég viti hvað ég geri árið þar á eftir, en jæja, þetta kemur allt bráðum í ljós:) jájájájá
Er lífið ekki yndislegt? :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home