Helgin og lífið sjálft
Lífið er skemmtilegt, ég rífst við krakka um að setja skóna upp í hillu og hóta þeim öllu illu ef þau skilja rusl eftir á gólfinu. Svo sé ég um að rústa 7.bekkingum í borðtennis þó ég tapi nú alltaf fyrir starfsmönnum...
Annars er æðislegt að vinna hérna, en ég er sammála gangavörðunum upp í skóla, skapið í krökkunum breytist eftir veðri. Í dag til dæmis í þessu leiðinlega veðri sem er búið að vera eru krakkarnir upptjúnnaðir og gengu berserksgang um félagsmiðstöðin. Þessar "elskur".
Annars er ferðaplanið í fullum undirbúningi, ferðirnar verða pantaðar innan skamms og þetta er allt eitthvað svo ótrúlega spennandi. Við ætlum að byrja á að fljúga til Caracas í Venezuela og skoða þar hæstu fossa í heimi, Englafossana, og svo áfram til Brasilíu og ná þar hinni frægu kjötkveðjuhátíð. Halda svo áfram að þræða hin löndin, Argentína, Uruguay, Paraguay, Bólivía, Chile, Perú og enda svo í Ecuador. Ferðaplanið verður samt hið sveigjanlegasta, sjá hvernig stemmingin er á hverjum og einum stað:) Ég er sem sagt að farast úr spenningi, þarf bara að fara að kaupa mér sandala og flugmiða:)
Sundhöllin, Sunnudagsmorgun, kl. 8:00

Ég lét loksins verða að því! Ég skellti mér á köfunarnámskeið. Það var alveg ótrúlega gaman! Við byrjuðum á því að læra að setja saman búnaðinn og sjá svona hvernig hann virkar og eftir það hentum við okkur út í laugina. Í heila 4 tíma svamlaði ég um og lærði heilan helling um hvernig er best að haga sér svona í kafi með súrefni á bakinu. Þar á meðal hvernig á að tæma gleraugun meðan þú ert í kafi ef þau fyllast af vatni.
Skemmtilegast fannst mér að sitja á botninum í djúpu lauginni og horfa upp. Á botninum á sundhöllinni fann ég hlera og undir honum var lítill klefi, ég reyndi að ímynda mér hvaða tilgangi þessi hleri þjónaði og komst að þeirri viturlegu ákvörðun að þetta hlyti að vera pyntingarklefi. Finni hver sinn tilgang fyrir þessum dularfulla hlera.
Næst á dagskrá er svo bóklegi hlutinn og eftir það verður farið út í sjó sem ég efa ekki að verða enn skemmtilegra en að svamla í sundlaug.
Lag dagsins:
Little green bag - George Baker

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home