Klukkan
Ég var víst klukkuð af henni Önnu og því koma hér 5 mismerkilegar staðreyndir um mig.
1. Ég hef ótrúlega gaman af því að labba eftir miðjum umferðargötum á nóttinni þegar það er lítil sem engin umferð. Enn þá skemmtilegra er samt að taka handahlaup út á miðri götu, það er æði!
2. Ég get sett tunguna á mér fyrir aftan úfinn. Háls-, nef- og eyrnarlæknirinn þakkaði mér fyrir að sýna honum þetta í þágu vísindanna.
3. Þegar ég var lítil var ég alltaf svolítið stressuð við að fara í skólaferðalög. Ástæðan var sú að ég talaði(og tala) mikið upp úr svefni og var alltaf svo hrædd um að segja frá einhverju sem að enginn mátti vita. Ég svaf þar af leiðandi aldrei neitt sérstaklega vel í slíkum ferðalögum.
4. Ég styrki bókasafn Héraðs- og Kjósarsýslu reglulega. Ef ekki bara mánaðarlega.
5. Þegar ég var yngri ætlaði ég aldrei að fara í MR vegna þess að ég þoldi ekki hvað MR vann alltaf Gettu Betur. Skemmtilegt hvað lífið er kaldhæðnislegt.
Já, og þar hafið þið það.
Ég klukka Elísabetu, Hrafnhildi, Jensa, Sigga og Hrólf.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home