föstudagur, nóvember 18, 2005

Blessuð jólin

Fyrsta boðbera jólanna var troðið inn um lúguna hjá mér í gær. Frá því að ég var barn hefur koma Bókatíðinda verið tilhlökkunarefni og vakið spennu fyrir jólin. Í bókatíðindum þetta árið tók ég hins vegar eftir áhugaverðri bók, YOSOY af líkamslistum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Þessi bók er nú eflaust ekkert merkilegri en aðrar bækur í bókatíðindum 2005 ef ekki væri fyrir það að þegar ég var lítil og bjó í byggðunum í Mosfellsbæ lét ég mig dreyma um að opna drauga- og hryllingshús í gömlu Álafoss-húsunum. Þar hafði ég hugsað mér að setja upp hryllingsmyndabíó þar sem eingöngu yrði sýndar hryllingsmyndir. Svo yrði þetta almennilegt draugahús þar sem fólki myndi bregða sí og æ. Álafosshúsin myndu einmitt henta mjög vel í þetta þar sem þau eru með draugalegri húsum í Mosfellsbænum.

Gríðarleg jólatilhlökkun hefur svo verið að sækja á mig undanfarið. Ástæðu þess rek ég til að ég er ekki í skóla þetta árið, en þetta hefur aldrei hellst yfir mig svona snemma. Það er svolítið fyndið þar sem að ég hef ávallt bölvað jólaauglýsingum í nóvember en nú hafa þær ekki þessi pirrandi áhrif á mig. Ég er meira að segja að íhuga að skella mér í bæinn á sunnudaginn og versla gjafir til að senda til fjarlægra landa, svo þær komist nú svona einu sinni til viðtakenda fyrir jól.

Annars skuluð þið ekkert vera að kíkja í Þrekhúsið um helgina, ég er nefnilega ekki að vinna. En ég mæli hinsvegar með því að þið komið næstu þrjár helgar á eftir þessari, þá getið þið verið viss um að lenda á góðu spjalli og ég skal meira segja splæsa á ykkur kaffi.

Góða helgi :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home