Gullni Rýtingurinn
Svo virðist sem breskir rithöfundar hafi verið ansi skúffaðir yfir því að einhver gutti frá Íslandi skyldi hrifsa af þeim stærstu verðlaunin í flokki glæpasagna þar í landi því að daginn eftir að Arnaldur hélt á brott með gullna rýtinginn og 3000 pund ákvað Samband breskra glæpasagnarithöfunda (British Crimewriters Association) að bækur skrifaðar á öðru máli en ensku væri ekki kjörgengar í keppninni. Merkilegt, sérstaklega ef litið er til þess hversu fjölmenningarlegt breskt samfélag er orðið.
Annars hef ég aldrei lesið neitt eftir Arnald Indriðason. Veit ekki afhverju, bara einhvern veginn ekki komið mér í það. Kannski maður grípi með sér kilju eftir hann til að lesa í tilvonandi rútuferðum suður í Ameríku...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home