Reitaruglingur
7.Nóvember
Þá eru víst liðin tvö ár síðan hin afdrifaríka embættismannaferð var farin í félagsheimilið Dreng í Kjós. Í tilefni dagsins var skundað í höfuðborgina á veitingastað þar í bæ. Já, svei mér þá, það er ekki laust við að maður sé örlítið skotin.
Annars er það að frétta að brottför af klakanum er áætluð 31. janúar. Þá mun haldið til Lundúnarborgar og þaðan til Venezuela. Hugmyndin er svo að ná kjötkveðjuhátíðinni í Río de Janeiro en stoppa samt í frumskóginum í millitíðinni. Fyrir utan það eru engar dagsetningar ákveðnar, nema Snæbjörn mun koma heim í byrjun júní en ég mun dvelja mánuði lengur í hinu heimalandinu mínu, Ecuador. Miklar líkur eru á stuði þar í júní mánuði en Ecuador náði þeim stóra áfanga fótboltalega séð að komast á HM annað skiptið í röð eftir margra áratuga fjarveru frá keppninni (ekki að ég viti mikið um fótbolta...).
Svo þegar ég hugsa um það þá eru ekki nema um 84 dagar þangað til við förum..... merkilegt ekki satt?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home