þriðjudagur, desember 13, 2005

48 dagar

Þetta líður ótrúlega hratt og eftir tæpar 7 vikur munum við vera komin í sólina og sæluna í Venezuela. Það sem hins vegar er að frétta er að við fundum loksins hótel í Río de Janeiro sem virkar mjög fínt og það skemmtilega er að það var mun ódýrara yfir kjötkveðjuhátíðina heldur en hostelin niður við Ipanema og Copacabana. Hótelið heitir Hotel Regina er í hverfi sem heitir Flamingo og er mitt á milli miðbæjarins og svo Ipanema og Copacabana svæðisins.

Jólaspenningurinn magnast og ég held ég hafi aldrei áður verið búin að kaupa eins margar jólagjafir jafn snemma og í ár. Fólk í kringum mig hefur hins vegar verið að kvarta yfir því að komast ekki í jólaskap vegna veðurs. Ég fann hins vegar að það er alltaf jafn jólalegt að ganga niður Laugaveginn og ekki skaðar að vera með fallega jólatónlist í eyrunum.

Annars langar mig að óska þeim sem eiga einhver próf eftir góðs gengis, og þið hin sem eruð búin til hamingju með það.

Hérna kemur svo einn lítill jólabrandari til að hressa ykkur við svona í lokin á jólaprófunum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home