mánudagur, desember 19, 2005

Strætó og háir hælar

Síðan ég man eftir mér hef ég átt í ástar/hatur sambandi við strætóa bæjarins. Hatursamband vegna þess hve oft ég hef misst af strætó og hversu mörgum klukkutímum ef ekki sólarhringum, ef allt er talið saman, ég hef eytt í að bíða eftir strætó í strætóskýlum og á biðstöðum. Án nokkurs vafa get ég sagt að Ártún var versta og leiðinlegasta strætóbiðstöð hér á landi.
Ástarsamband mitt við strætó lýsir sér hins vegar í þeirri ánægjutilfinningu sem hellist yfir mig þegar ég næ strætó loksins, án þess að þurfa að bíða heil ósköp í strætóskýlinu. Þá get ég líka þóst vera umhverfis- og vistvæn auk þess ef ekki væri fyrir strætó væri ég líklegast búin að kaupa bíl og ætti þá ekki eins mikið fyrir Suður-Ameríku reisu minni nú í janúar.
Hins vegar hefur þetta samband mitt við strætó þróað þá áráttu með mér að þurfa eilíflega að hlaupa út í strætóskýli. Ég get varla fyrir mitt litla líf sleppt því að hlaupa út á strætóstoppistöð, en þetta virðist þó eingöngu eiga við hverfisbiðstöðina mína. Jafnvel þótt ég sé vel tímanlega á leið minni í strætó þá læðist alltaf sá ótti með mér að strætó ákveði að vera of snemma og ég þurfi enn einu sinni að vera vitni að því að hann keyri í burtu beint fyrir framan nefið á mér án þess að ég geti nokkuð gert. Þess vegna hleyp ég.
Eftir fjárfestingu mína í leðurstígvélum nú um daginn hefur þessi hlaupaáratta orðið mér til nokkurra trafala. Ég þurfti eilíflega að fara fyrr af stað ef ég ætlaði mér að vera á hælum. En hætti ég að hlaupa? Nei, ég virðist hafa lært að hlaupa á hælum. Ég, manneskjan sem undraði mig alltaf á því hvernig kvenlöggurnar í bíómyndunum færu eiginlega að því að hlaupa á pinnahælum. En greinilega er allt hægt með æfingu. Að sjálfsögðu byrjaði ég ekki að hlaupa eins þokkafullt og kvenlöggurnar. Ég ímynda mér að ég hafi litið út eins og hæna á hlaupum en hægt og rólega hef ég verið að þróa með mér fallegri hlaupastíl á hælum. Að vísu hef ég ekki enn náð þeirri tækni sem einkennir leikkonur spennumynda en ég svo sver það það er ekki langt í það. Eflaust er ennþá asnalegt að horfa á mig hlaupa á hælum, ekki hleyp ég nú hratt og tæknin nær ekki enn yfir pinnahæla en andskotinn hafi það ég hleyp allavega. Ef þessi strætó-hlaupaáratta mín heldur áfram á sömu braut (sem og hælaskóa-kaup) má búast við því að á næstu árum geti ég fullkomnað háhælaða-hlaupastílinn og jafnvel reynt við pinnahæla. Á endanum fengi maður svo kannski vinnu sem staðgengils hlaupari á háhæluðum skóm í Hollywood-bíómynd. Ekki amalegt það...

Meðmæli dagsins

Pandora.com er síða sem ég rakst á um daginn. Hugmyndin að þessari síðu er sú að hjálpa fólki að uppgötva nýja tónlist. Pandora virkar líkt og útvarpsstöð sem þú velur tónlistarstefnuna á. Þú slærð inn nafn á hljómsveit eða lagi sem þér líkar vel, og Pandora finnur þá tónlist fyrir þig í svipuðum dúr. Á meðan hvert lag er í spilun hefur þú möguleikann á því að leiðbeina henni um hvort þér líki það sem Pandora er að spila eða ekki. Útvarpsstöðin tekur þá mark á því og breytir í viðeigandi átt í tónlistarvali. Mjög skemmtileg síða sem flestir ættu að geta haft gaman af.

Lög dagsins


Arcade Fire
- Crown of Love
Fiona Apple - Fast as you can

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home