fimmtudagur, janúar 19, 2006

Hvað segiði....

... ekkert á þessu bloggi? Nei, nú er það þetta blogg sem blívar -
www.suduramerika.blogspot.com

Ferðalýsing á leiðinni. Ekki slæmt ha?

Þetta er allt saman búið að líða ótrúlega hratt. Árið byrjar vel, ekki slæmt að hefja nýtt ár á dúndur partý hjá Unu. Helgin á eftir stóð líka fyrir sínu. Kveðjupartý hjá Önnu, eflaust eitt skemmtilegasta teiti sem ég hef farið í, með einu fyndnasta þema sem ég veit um. Þemað var sem sagt Bad Taste, hallærislegt, corny og þar fram eftir götunum. Fólk tapaði sér hreinlega. Ég hef ekki enn séð myndirnar, örugglega svakalegar...

Á laugardeginum var svo keila og partý hjá gömlu unglingdeildinni. Ótrúlega gaman að hitta þessa krakka alla aftur, þó svo að þeirra sem ekki komust hafi verið sárt saknað.

Árið 2006 lítur sem sagt einstaklega vel út og sérstaklega þar sem það eru bara 12 dagar þangað til brottför. Pínu kvíðahnútur, ennþá meiri spenna.

Usss... hættið að bulla í mér....

Lag dagsins

Leaders of the free world - Elbow

og svo ég vitni í textann:

„But the leaders of the free world are just little boys throwing stones
And its easy to ignore ‘til they’re knocking on the door of your homes“

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home