
Ég á bókað flug á fimmtudaginn, þann 30.nóvember, nánar tiltekið frá London til Miami og frá Miami til Quito, Ecuador. Ég gæti sem sagt verið komin til Ecuador klukkan 9 á fimmtudags kvöldið, tekið svo rútu niður að strönd og sólað mig þar daginn eftir. Um kvöldið gæti ég síðan dansað í takt við salsatónlist með mojito í annarri og gleymt öllu sem heita próf eða ritgerðir. Komið svo heim sólbrún og sæt, eða bara ekkert komið heim, ég á víst bara miða aðra leiðina.
Hvað mynduð
þið gera?
Þið vitið allavega hvar ég verð ef þið heyrið ekkert í mér á næstunni...
4 Comments:
Sko... þú ferð ekkert að fara og skilja mig eina eftir í prófaógeði sko. Annaðhvort verðurðu hér að ógeðast með mér og öllum hinum eða ég hreinlega neyðist til að koma með þér til Ecuador. Það er svona...
Ohhh, Ég fæ bara hroll af kuldanum hérna því mig langar svo út í sól og sumar! Mér findist það allavega ofboðslega freistandi að fljúga bara út ef ég ætti miðann;) En auðvitað mátt þú ekki fara.... þú bara gefur mér miðann ;)
Á skrifborðinu mínu er svona plastmotta með mynd af korti á jörðinni og ég er alltaf að stoppa til að skoða það, skoða alla þessa afkima sem mig langar til að sjá. Og núna í vikunni fór ég að hugsa að mig langar að fara með þér til Ecuador og í ferð þaðan til Galapagos og kannski fleiri staði. (Argentínu jafnvel í almennileg nautasteikur-rauðvíns-ísveislu).
Ég hlakka til að gera þetta með þér einhvern daginn.
Mikið rosalega væri ég til í að fara með þér til Ecuador, Una. Argentína hljómar heldur alls ekki illa :) Þú verður líka að sýna mér Minneapolis!
Þið megið annars eiga miðann minn stelpur, en hann er því miður floginn.
Einhvers staðar í háloftunum er autt sæti (sem ég hefði getað verið sitjandi í akkúrat núna) á leið til Ecuador, og mun vera autt þegar flugvélin lendir á alþjóðlega flugvellinum í Quito eftir svona u.þ.b. 1 klukkutíma og 3 korter...
dæs...
Skrifa ummæli
<< Home