Ferðahugur
Á þessum árstíma svífur alltaf á mig gríðarleg ferðaveiki. Ég geri vart annað en að láta mig dreyma um ókunn lönd og skoða myndir hvaðanæva að. Og ekki hjálpar það að allir í kringum mig virðast vera að skreppa í helgarferðir hingað og þangað um heiminn. Annars er ég að vinna í að koma öllum myndunum okkar úr ferðinni á netið, og merkja áður en maður gleymir stöðum og nöfnum. Að sjálfsögðu mun ég láta ykkur vita þegar myndirnar koma loksins á netið.Annars er víst 7. nóvember í dag. Gaman að því :)
Í gær var svo hringt í mig í fyrsta skipti að hamstra atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna á kraganum sem er á laugardaginn. Það var maður sem ég þekki ekki neitt (allavega ekki svo ég muni eftir) og ég átti að kjósa hann því hann er í stjórn Slysavarnarfélagsins Landsbjörg, sem er svo sem alveg jafn góð afsökun fyrir að kjósa einhvern sem og hver önnur, en ég efast nú um að ég fari að skrá mig í sjálfstæðisflokkinn til að kjósa hann, eða bara yfir höfuð.
Hann fær samt plús fyrir að hringja sjálfur.
Lag dagsins
The National - Baby, we'll be fine
1 Comments:
Gamanm að heyra frá þér sæta ;) alltaf gaman....sé þig um jólin
bæbæ Elísabet
Skrifa ummæli
<< Home