Blogg ferðasjúklingsins
Eftir að hafa lesið færsluna hennar Önnu, var ég enn viðþolslausari en ég var (Takk Anna!!!). Og þar sem ég hef nýlega farið í gegnum allar myndirnar úr ferðinni okkar langaði mig til að deila með ykkur þessum stórskemmtilegu vídjóum. Hækkið í hljóðinu (ef það er hægt að hækka í hljóði...) og njótið.
Þetta myndband sýnir hvernig það er að vera á siglingu um Amazon fljótið að degi til. (4 mb, erlent niðurhal)
Næturhljóð frumskógarins, það vantar bara að það heyrist í öskuröpunum. Við vorum að veiða í myrkrinu þegar þetta var tekið upp. (10 mb, erlent niðurhal)
Hér má hins vegar sjá letidýr að fikra sig niður úr tré. Best að bíða eftir að það hlaðist, svolítið stórt myndband. (113 mb, innlent niðurhal). Það heyrist örlítið í Edson, leiðsögumanni okkar í þessu myndbandi. Ef þú vilt sjá þetta myndband í fullri stærð geturu séð það hér.

9 Comments:
Það er svo magnað að sjá brot úr svona ólíku umhverfi. En líklega jafnast ekkert á við að vera þarna......
Geggjað! Mér finnst svo gaman að sjá svona vídeó úr ferðalögum.. miklu meira lifandi.. :)
Ég er alveg friðlaus sjálf.. ráfa um netið í leit að djúsí ferðasíðum..
Mæli með því að þið ferðasjúklingar skoðið síðuna www.fullpassport.com en ég rakst á hana fyrir einhverjum árum. Þetta fólk gerði þetta almennilega svo lítið sé sagt!
.. must.. go.. on.. learning.. am.. dying.. *gaaaahhh*
Vó, mögnuð síða Erna! Þriggja ára bakpokaferðalag.... ég held ég þurfi að byrja að safna ;)
og já Erna, þegar þú sendir mér þessa síðu þá mundi ég allt í einu eftir manninum sem við hittum í frumskóginum sem var ekki viss hvað hann ætlaði að ferðast lengi, hann er núna búinn að ferðast í ca. 6 ár, bara með stuttum stoppum heima hjá sér í Kaliforníu. Fann síðuna hjá honum aftur. www.groovydomain.com. Bara svona til að stytta þér stundir við lesturinn ;)
Takk fyrir að sýna okkur þessi myndbönd Elín Lóa, mjög skemmtilegt að fá smá svona nasasjón af ferðalaginu ykkar.
Hóst hóst, minn ferðahugur varð svo slæmur að ég endaði á því að kaupa mér ferð til Kúbu... Ég klára síðasta prófið mitt á morgun og skelli mér síðan út til Kúbu á laugardaginn og kem heim brún og sæt á Þorláksmessu :)
Ps. Þetta í sambandi við matarvenjur. Þá sneiðir pabbi ost ofan á banana og svo sá ég frænda minn einu sinni borða hnallþóru með hrásalati. Já, þetta var svona majónes hrásalat. Þá kúgaðist mamma...
Vó, ég hélt að ég borðaði ost ofan á skrýtna hluti.. en banana? Það hef ég aldrei prófað.
Góða ferð til Kúbu annars, hefði ekkert á móti því að skella mér með þér, má ég ekki sitja undir þér í flugvélinni eða fela mig í töskunnni? Ég get verið túlkur og þú þarft ekkert að taka mig heim með þér aftur;)
------
Verði þér að góðu Una :)
Núna er ég búin á hlusta á frumskógarhljóðin átta sinnum í röð. Brjálað. Takk fyrir!
ég elska letidýr!!
Skrifa ummæli
<< Home