Ég fann þessa skemmtilegu mynd á blogginu hjá Aldísi frænku. Þarna má sjá, frá vinstri, Erlu Björk, mig, Mörtu og Aldísi að gæða okkur á ísblómunum frá Nonna afa á ættaróðalinu í djúpinu, Vonarlandi.
hehe! Ég ætla að fá fleirri myndir þegar ég fer vestur um jólin og þá getum við allar fengið nett nostalgíu kast! Hvernig líst ykkur á það? Ísblóm! mmm.... samt ekki bónus ísblómin þau eru ógeð! og líka sykurlausu ! jakk! Svona eins og að hella undarennu á skyrið í stað rjóma!
7 Comments:
Hah, skemmtileg mynd. Voðalega eruð þið öll ljóshærð og útitekin og íslensk. Og dýna með blómamunstri. Gaman.
Ég væri til í ísblóm.
Allir mjög einbeittir við sína iðju á þessari mynd.....
Æ en sætt! Ís var svo sérstaklega góður á þessum aldri... hvað þá ísblóm!
Mig grunar líka að við séum að hlusta á sögu í kasettu „monster truck“ tækinu, sem er þarna fyrir framan okkur.
Já, Grjóni það er rétt, við erum ekkert smá einbeittar í að borða þessi ísblóm :)
Ég er sammála Unu.. mjög íslensk mynd :) Maður fær sér allt of sjaldan ísblóm nú til dags.
ohhh já..... amma og afi áttu alltaf ísblóm :)
Frábær mynd og ég sakna ykkar bara við að sjá hana :)
Ætla að stela henni og setja á mitt blogg líka ;)
Hafðu það best.
hehe!
Ég ætla að fá fleirri myndir þegar ég fer vestur um jólin og þá getum við allar fengið nett nostalgíu kast! Hvernig líst ykkur á það?
Ísblóm! mmm.... samt ekki bónus ísblómin þau eru ógeð! og líka sykurlausu ! jakk! Svona eins og að hella undarennu á skyrið í stað rjóma!
Skrifa ummæli
<< Home