föstudagur, febrúar 23, 2007

Æðislegt myndband

Únglíngarnir mínir geta stundum verið algjör yndi. Þeir bentu mér meðal annars á myndband sem mér finnst, vægast sagt, frábært. Einn af þeim, únglíngunum, dansar að meira að segja alveg eins og maðurinn í myndbandinu. Fylgist vel með vísifingrahreyfingum hans.



Þetta myndband er tileinkað Erlu Björku systur minni, af því að ég var að horfa á Bride and Prejudice um daginn og sá þar Kóbru dans nokkurn sem ég gat ekki hætt að hlægja yfir, og ég sagði í sífellu: „Ég vildi að Erla Björk væri hérna.“Ég tók þetta meira að segja upp svo að þú, mín kæra systir, gætir séð þetta atriði.

Svo lét ég undan pressunni og fékk mér MæSpeis fyrir nokkrum vikum, þannig að ef þú vilt vera vinur minn þá er ég hér.

2 Comments:

Anonymous Mokki litli said...

Ég og Ásdís lærðum einu sinni dansinn.

23 febrúar, 2007 11:24  
Anonymous Erla Björk said...

Já ég þakka tileinkunina.. Ef maður gæti verið jafn hamingjusamur og þessi gaur, eða jafnvel þó maður ætti bara sömu flíkina í jafn mörgum litum og hann, já þá væri maður hamingjusamur!
Annars finnst mér þessi "sitja á hesti" hreyfing vera í hæsta máta vafasöm og langar mig að vita hvernig henni hefur verið tekið í landinu þar sem þessi ágæti maður býr...
En annars langar mig að láta þig vita að ég kann öll þessi "múv" já mannininum, og skal taka þau fyrir þig næst þegar við hittumst, systa...

12 mars, 2007 22:26  

Skrifa ummæli

<< Home