laugardagur, nóvember 10, 2007

Sitt af hvoru tagi

Í sumar kom maður, einhvers staðar frá Stóra-Bretlandi, að máta flíspeysur niðri í Cintamani búð á Laugaveginum. Hann var steríótýpan af fótboltabullu, snaggaralegur, lágvaxinn, fúlskeggjaður, það sem virtist hins vegar há honum við mátun þessara peysa var ofvirkni og valkvíði. Hann reif sig í og úr peysum, fleygði þeim um alla búð, alls staðar voru peysur á röngunni, peysur í kuðli, og þessi skrípaleikur gekk á í svona klukkutíma þangað til honum loks tókst að velja eina peysu. Þá fór hálftími í að máta lopapeysur. Þennan sama mann sá ég í fyrrakvöld í heita potti Vesturbæjarlaugar lesandi bók.

----

Tómas R. Einarsson töffari hélt stutt erindi um sig og tengsl sín við Kúbu. Íklæddur jakkfötum og skærgrænum skóm spilaði hann fyrir okkur bæði nýtt og eldra efni á málþingi um menningu og bókmenntir Kúbú og Panama.
Það var gaman að hverfa aftur suður um haf, þó það væri ekki nema eftirmiðdagsstund.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home