sunnudagur, febrúar 17, 2008

Ertu bara í spænsku?!

Ég hef oft velt því fyrir mér hver séu vanmetnustu fög sem hægt er að leggja stund á, og hef því sett saman lista með námsframboð Háskóla Íslands sem viðmiðun. Listinn samanstendur af þeim fögum sem ég held að nemendur fái flest “vott-the-fokk-andlit“ og hversu margar „...og hvað ætlaru að gera við það?!“ spurningar þegar það dirfist að minnast á hvað það sé að læra.

Áður en ég kem að þessum lista langar mig hins vegar að leiðrétta algengan misskiling í sambandi við mitt eigið nám. Grunnur fyrir námið er nauðsynlegur og hæfni í hlustun einnig, allir tímar og öll skil eru á spænsku. „Kennarinn minn í bla-bla-mennta/framhalds-skólanum talaði alltaf spænsku í tímum!“ Já er það? Og skildiru eitthvað? Talaði hann um stefnu natúralisma í bókmenntum 19. og 20. aldar Spánar? Eða hvernig tungumálið þróaðist frá latínu og áhrif máranna á það? Stjórnmál og sögu Suður-Ameríku?!

Ég er ekki í spænsku til að læra að bjarga mér á túristastöðum á Spáni, né til að kaupa appelsínur út í búð. Það er eitthvað sem ég get nú þegar. Ég er í spænsku til að ná sem allra bestu valdi á þessu blessaða tungumáli, sem og sögu þess og menningu.

En nú að listanum, hér tilgreini ég aðeins efstu sætin, og óska eftir athugasemdum ef ég hef gleymt einhverju fagi sem verðskuldar að vera hér, fagi sem sætir fordómum vegna vanþekkingar.

12. Félagsfræði
11. Stjórnmálafræði
10. Mannfræði
9. Listfræði
8. Erlend tungumál fyrir utan ensku
7. Enska
6. Bókmenntafræði
5. Kvikmyndafræði

4. Saga
3. Kynjafræði
2. Heimspeki

Og efst trónir svo....

1. Íslenska

Uppfært 18. febrúar 2008, 15:20. Uppfærsla skáletruð.

16 Comments:

Anonymous Steinunn said...

Já ok nú skil ég, ég sem hélt annars alltaf að þú kynnir ekki að biðja um appelsínur í búðum. Sá fyrir mér mjög vandræðalega búðarferð: "ég ætla að fá mjólk, brauð og ..... ohhhh"
En að öllu gamni slepptu, ég held ég verði að vera sammála þér, held að þessi fög séu einmitt þau sem eru vanmetnustu fögin, spurning samt hvort íslenskan sé efst en það getur svosem vel verið ;)

17 febrúar, 2008 23:19  
Anonymous Elín Lóa said...

Haha, já, ég ætti kannski bara að hætta að borða appelsínur ;)

Annars átti ég í pínu vandræðum með að velja í 3 efstu sætin, fannst jafnvel að heimspekin ætti betur heima í því efsta... En samt varð íslenskan fyrir valinu, kannski út af því að ég ímynda mér að íslenskunemar fái flestar "ætlaru að verða kennari?" spurningar.

17 febrúar, 2008 23:23  
Anonymous Steinunn said...

Já ég skil þig. Held ég hefði sett heimspeki efst en hvað veit ég, ég er baaara í sálfræði. Heyri þetta alveg um sálfræði líka en ætla alls ekki að segja að hún eigi heima á þessum lista, held mitt fag fái meiri skilning en þessi ;) þó fólk haldi að ég sé að læra að lesa út úr draumum og að hlusta á fólk (sem liggur á legubekk) segja frá vandamálum sínum og inn á milli svara ég "aha" og "umhumm" ;)

17 febrúar, 2008 23:28  
Anonymous Una said...

Haha ég er einmitt með svipaða færslu í bígerð sem ætlunin er að birta í vikunni í tengslum við útskrift hjá mér úr einu þessara faga sem fólk telur tilgangslaust. Skemmtilegt. Ég myndi segja að þetta væri jafntefli á milli heimspeki og íslensku. Þegar ég byrjaði að lesa færsluna hugsaði ég strax að heimspeki væri á toppnum, en held samt eftir á að hyggja að þetta gæti verið rétt með íslenskuna. Ég meina...við kunnum öll íslensku þú veist þannig að what the fuck, til hvers að læra hana?

18 febrúar, 2008 09:20  
Anonymous hilda said...

já vá. þetta eru svo algeng viðbrögð þegar björn segist aðspurður vera í heimspeki. maður sagði einmitt um daginn: jæja. kannski gætir þú nú fengið vinnu á bóksafni.

það væri langsótt, en bókasafnsstarf er vonin..

varðandi erlend tungumál, þá finnst mér japanska tróna efst innan flokksins. úff sko.

18 febrúar, 2008 10:20  
Anonymous Mokki litli said...

Ekki má gleyma kynjafræði og kvikmyndafræði!

18 febrúar, 2008 11:08  
Anonymous Sigurjón said...

Æi, ertu nú viss um að félagsfræði eigi nokkuð heima á þessum lista? Á þetta fólk fordómana ekki skilið?

18 febrúar, 2008 13:36  
Anonymous Una said...

Hahahahaha

18 febrúar, 2008 14:06  
Anonymous Elín Lóa said...

Magga, já, steingleymdi þessum fögum og líka bókmenntafræðinni. Ég kannski uppfæri listann, eitthvað fleira sem ég er að gleyma sem þið munið eftir?

Þetta er alveg ótrúlegt, Björn getur náttúrulega hvergi fengið vinnu nema á bókasafni, hvað er hann eiginlega að pæla? Annars, innan erlendu tungumálanna þá held ég líka að gríska og latína skori ansi hátt.

Grjóni, þetta staðfestir nú bara grun minn um að félagsfræðin eigi vel heima þarna ;)

18 febrúar, 2008 15:08  
Anonymous Anna said...

Þetta var þörf bloggfærsla :) Ég fæ einmitt iðulega þessa spurningu um enskunám mitt: "ætlarðu að verða kennari?" Eða.. "og ertu þá búin með kennarann líka?" Haha... Ææ, það er erfitt að vera til í hinum akademíska heimi!

18 febrúar, 2008 15:15  
Anonymous Björn said...

kannski finnst fólki þetta svona skrítin fög því það lítur á hlutverk skólakerfisins að unga út vinnuafli, en ekki hugsuðum.

oftar en ekki eru þeir sömu forviða þegar þeir sjá fjöldamótmæli í sjónvarpinu, t.d. frá Gazaströndinni og spyr hneykslað: "Þarf þetta fólk ekki að vinna???"

samt er athyglisvert að viðskiptafræði og hagfræði eru góð og gild svör í þeirra eyrum, þó fólk hafi álíka takmarkaðan skilning á þeim sviðum.

18 febrúar, 2008 17:49  
Anonymous Elín Lóa said...

Já, það er undarlegt að þau fög sleppi í gegn um gagnrýnina, en það er eflaust vegna þess að þetta eru peningafög, þú færð allavega vinnu í banka út á þau.

En ég held að þú hafir hitt naglann á höfuðið, mörgum finnst nám algjörlega tilgangslaust nema þú getir gengið að einhverju ákveðnu, vel skilgreindu, starfi eftir skólagöngu.

18 febrúar, 2008 20:24  
Anonymous Aldís said...

hehe
já
ég var nú búvísindum jájá... þarf að segja meira?

19 febrúar, 2008 16:32  
Anonymous Elín Lóa said...

Haha nei Aldís, það er rétt, búvísindi er akkúrat grein sem passar á þennan lista.

Var líka hugsað til landafræði... Vanmetnu fögin eru því ansi mörg.

20 febrúar, 2008 22:22  
Anonymous Anonymous said...

Ég hef nú fengið ýmsar misgáfulegar spurningar í sambandi við uppeldisfræðina hehe. Svo sem afhverju ferðu ekki bara í Kennó ef að þig langar til að verða kennari? Og hvað gerir uppeldisfræðingur? Elur hann upp börn?

Kv. Siggi

03 mars, 2008 16:46  
Anonymous Hrafnhildur Haldorsen said...

Heyr, heyr. Þetta kalla ég gagnlegan lista!
Ég skil þjáningu þína Elín Lóa :)
Ég held ég hafi fegnið svona "Jáááá, gagnlegt...kanntu ekki ensku nú þegar?!?" lúkk frá svona 99% þeirra sem spurðu mig hvað ég væri farin að læra :Þ

07 mars, 2008 17:18  

Skrifa ummæli

<< Home