sunnudagur, mars 30, 2008

Neytendavaktin

Í fjarveru góðvinkonu minnar Unu Sighvatsdóttur af þessu landi, hef ég ákvað að taka upp jákvæðu neytenduvaktina á þessum krepputímum. Einn af nýrri veitingastöðum bæjarins er mexíkóski staðurinn Santa María, staðsettur á Laugaveginum þar sem Angelo var áður. Hann býður upp á skemmtilega stemmingu, skreyttur á mexíkóska vísu með glímuköppum, dýrlingum og hauskúpum. Á matseðli þeirra eru aðeins tveir réttir sem eru yfir þúsund krónunum, annar þeirra er á 1300 kr. og hinn á 1100 kr., báðir saltfiskréttir. Mikið er nú góð tilbreytinga að geta sest inn á veitingastað og fengið sér virkilega góðan mat á góðu verði. Nú er bara að vona að hann endist lengur heldur en Angelo.

1 Comments:

Anonymous Steinunn said...

Hmmm, hljómar vel. Er þú þá búin að borða það ElínLóa?

31 mars, 2008 17:59  

Skrifa ummæli

<< Home