[Án titils]
„Af hverju geturu ekki bara farið til útlanda í 1-2 vikur eins og venjulegt fólk?“ spurði mamma mig þegar ég kvaddi hana. „Þú þarft alltaf að fara svo langt í burtu!“.
Kveðjustundirnar voru óskaplega erfiðar, þær virðast ekkert ætla að verða auðveldari. Það var því mjög gott að eiga Siggu-öxl að eftir að við fórum í gegnum tollinn. Flugin gengu hins vegar eins og í sögu, meðvindur alla leið og við náðum meira að segja að sofa nokkra tíma á flugvellinum í Halifax. Þegar við stigum út úr flugvélinni á José Martí flugvellinum í Havana tók útlandalyktin og hitinn við okkur. Loksins vorum við komnar. Loksins loksins, eftir að hafa fengið hugmyndina í nóvember fyrir rúmum 10 mánuðum. á málþingi um Kúbu og Panama í nóvember síðasta árs. Skrýtið að vera allt í einu staddur í ævintýrinu. Einhverju sem var svo fjarlægt fram á síðustu stundu.
Leigubíllinn okkar frá flugvellinum var ekki gamall. Það eru ekki allir bílar hér gamlir, eins og við, kannski grunnhyggnislega, héldum. Við hlógum geðveikislega á leiðinni, þetta var allt bara eittvað svo brjálað. Þessi „ótýpýski“ kúbverski bíll bar okkur að íbúð okkar og heimili næstu fimm mánuðina. Hún var í þessu sjarmerandi nærbuxnableiku húsi. Þegar við komum var verið að skúra, heilli fötu af vatni skellt á gólfið eftir að hafa fjarlægt allt lauslegt (stólar, náttborð, o.s.frv.) og svo bara vandlega skrúbbað í þessari sundlaug sem myndast á gólfinu. Vatnið er svo þurrkað með fullt fullt af tuskum, eða einfaldlega skúbbað út um aðaldyrnar.
Sá sem stóð fyrir þessum hreingerningum var leigusali okkar og eigandi íbúðarinnar Roberto ásamt vinkonu sinni sem sá að mestu um þrifin. Hann hafði ekki búist við okkur svona snemma, en bauð okkur að ganga í bæinn. Í fyrstu var ég ekki alveg viss hvað mér fannst, íbúðin var allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér. En um leið og búið var að skúra og koma öllu fyrir eftir skúringarnar leit þetta mun betur út. Gengið er beint inn í stofuna og borðstofuna þar sem eru tré/bambus húsgögn auk tveggja betri stóla. Það er meira að segja lítið sjónvarp. Frá stofunni er svo hægt að ganga inn í eldhúsið sem er bara pínulítið með þessum fína ískáp og gaseldavél sem er ansi mikið komin til ára sinna. Úr stofunni er svo gengið inn í hjónaherbergið, þar sem ég sef, og svo úr mínu herbergi yfir í Siggu herbergi þar sem eru tvö rúm. Við erum báðar með eigin klósett og sturtu. Rosa lúxus. Það er einnig hægt að ganga í gegnum eldhúsið, í gegnum lítinn „úti-gang“ þar sem er vaskur og snúrur og inn í herbergið hennar Siggu. Þetta er sem sagt fínasta íbúð eftir allt saman, þó á suður-amerískan standard sé.
Það fyndna samt við þetta allt saman er að ef einhver spyr hvar eigandinn Roberto sé, þá verðum við að segja að hann hafi farið út eða sé að vinna. Hann má nefnilega víst ekki leigja út nema annað herbergið en hann býr í raun í næstu götu. Hann kemur því stundum þegar við erum heima til að spóka sig og sýna sig, fer út með ruslið og svona, til að fólk haldi að hann búi í alvöru hér hjá okkur. Annars líður okkur Siggu bara ágætlega í thessari íbúd og erum bara ansi góðar saman.
Mestu leyti skrifud 7.september 2008

6 Comments:
ohh mamma þín er svo mikil músla!
Alveg sætust
En gaman að fylgjast með öpplevelsinu.
Verð alveg æstust og refressinu á readernum mínum í vetur.
kv úr íslenskri rútínu
Heiða
Ég fylgist ótrúlega spennt með ykkur á bloggvaktinni, alltaf svakalega glöð þegar nafnið þitt birtist :) Ótrúlegt með þessi hús þarna.. Af hverju þurfa þau að vera svona pastel?? Svo brosti ég í kampinn að þessu því amma sagði einmitt við mig þegar ég kom heim frá Asíu: "Ætlarðu svo ekki bara að vera heima núna? Ertu ekki örugglega bara búin að fá nóg?!"
Hafið það ótrúlega gott, njótið lífsins, upplifið og bloggið svo um það fyrir mig. Hversdagsleikinn er nefnilega alveg ótrúlega hversdagslegur hér :/ Knús og kossar.
Fyndið að Roberto þurfi að þykjast búa heima hjá ykkur. Fyndið hvað manni getur fundist eðlilegt svona langt í burtu en myndi bara aldrei gerast á Íslandi... haha :)
Alveg sammála mömmu þinni!! ;) Mér líður samt eins og ég sé byrjuð að lesa nýja bók um stelpur sem fara til Kúbu ;) Hehe.
Passið ykkur bara á að hafa nóg af rusli fyrir hann að ganga frá þegar hann kemur. Þýðir ekkert að láta þessa leigusala liggja í leti ;)
Gaman að lesa bloggið þitt. Bestu kveðjur héðan úr haustinu :)
Hæ!
Skrifa ummæli
<< Home